UMHVERFISSTEFNA MÁLNINGAVARA
Í starfsemi Málningarvara verður leitast við að lágmarka áhrif á umhverfið og stefna sífellt að betri árangri í umhverfisvernd í daglegum rekstri fyrirtækisins.
Forstjóri Málningarvara, Karl Jónsson, er ábyrgur fyrir viðhaldi og endurskoðun stefnunnar. Sérhver starfsmaður framfylgir umhverfisstefnunni og hefur hana að leiðarljósi í öllu starfi sínu og sýnir gott fordæmi.
Stefna Málningarvara í umhverfismálum er að vinna stöðugt að endurbótum með það að markmiði að lágmarka áhrif fyrirtækisins á umhverfið.
Þetta gerum við með því að:
- Uppfylla lög og reglugerðir um umhverfismál og að tryggja að starfsmenn séu meðvitaðir um mikilvægi verndunar umhverfisins í aðgerðum sínum.
- Flokka allt sorp sem fellur til og lágmarka notkun á rekstrar og skrifstofuvörum.
- Forðast alla sóun við meðhöndlun og notkun hráefna og umbúða. Endurnota og endurvinna það sem fellur til í rekstri eins og hægt er og farga öðru á viðeigandi hátt.
- Leitast við að nota efni og umbúðir sem eru umhverfisvænar.
- Mengunarvarnir fyrirtækisins séu í samræmi við lög og reglugerðir og þess sé gætt við allar breytingar og nýbyggingar taki mið af líklegum framtíðarkröfum á þessu sviði.
- Leita stöðugt leiða til að minnka notkun umbúða, orku og vatns við framleiðslu, sölu og dreifingu vara fyrirtækisins.
Umhverfismarkmið Málningarvara:
- Umhverfisvænir bílar hjá fyrirtækinu fyrir 2030
- Allt sorp er nú flokkað.
- Lífrænir plastpokar á fyrrihluta 2021
- Pappírslaus viðskipti fyrir árslok 2021
- Innleiða grænt bókhald fyrir lok 2021